top of page

SAGA HÖFÐASKÓLA

Saga skólahalds á Skagaströnd nær allt aftur á síðustu öld. Þá var farkennsla við lýði og svo var einnig fyrstu fjóra áratugi þessarar aldar. Kennslan var þá allt frá 2-3 vikum og upp í 2-3 mánuði á ári. Kennslustaðirnir voru margir allt til ársins 1922 að keypt var sérstakt húsnæði undir skólann í kauptúninu. Var það hús úr steinsteypu, byggt árið 1912 sem verslunarhús og stóð á Hólanesi við sjóinn. Þar var kennt til ársins 1958. Kennslustofur voru tvær.

 

Árið 1939 varð kauptúnið að sjálfstæðu sveitarfélagi og það sama haust var komið á fót ,,fastaskóla”. Fyrsta skólaárið, 1939-1940, var kennt frá 17. október til 10. maí, alls 135 daga. Nemendur voru þá samtals 46 í 2 bekkjardeildum. Einn kennari starfaði við skólann, Páll Jónsson, og var hann jafnframt skólastjóri.Eftir því sem fólki fjölgaði í kauptúninu óx nemendafjöldinn smátt og smátt, fleiri deildir komu til og kennurum fjölgaði. Kennt var 6 daga vikunnar og var það gert allt til ársins 1973. Skólinn var tvísetinn og þrengsli mikil, sérstaklega eftir að unglingadeild var bætt við árið 1948. Því var brugðið á það ráð að byggja nýtt skólahús og var það tekið í notkun 2. nóvember 1958. Þá voru 117 nemendur í 7 bekkjardeildum. Hins vegar voru kennslustofur aðeins 4 og því skólinn áfram tvísetinn.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fjöldi kennara var nokkuð jafn fram yfir 1970, eða um 4-6. Með lengingu skólans, fleiri vikustundum og minni kennsluskyldu hefur þeim fjölgað jafnt og þétt síðan og nú eru 13 stöðugildi í kennslu við skólann. Af kennurum starfaði Elínborg Jónsdóttir lengst, fyrst sem fastur kennari frá 1945-1985 og síðan sem bókavörður og stundakennari í tíu ár í viðbót, alls hálfa öld. Þá hefur Ólafur Bernódusson kennt við skólann frá árinu 1972, að undanskildu einu orlofsári og einu ári þegar hann ætlaði sér að hætta að kenna. Ólafur hefur því starfað við skólann í 43 ár.

Páll Jónsson var skólastjóri frá 1939-1966, þá tók sonur hans, Jón Pálsson, við stjórninni og var til ársins 1986, að undanskildu einu ári, 1973-1974, er Jóhanna Kristjánsdóttir gegndi skólastjórn í námsorlofi Jóns. Árið 1986 tók Páll Leó Jónsson við og var í fimm ár, eða til 1991 en þá tók Ingibergur Guðmundsson, við stjórnartaumunum. Veturinn 2002 – 2003 gegndi Stella Kristjánsdóttir stöðu skólastjóra vegna námsleyfis Ingibergs. Haustið 2005 tók Hildur Ingólfsdóttir við skólastjórn úr höndum Ingibergs er hann lét af störfum við skólann. Hildur var í námsleyfi frá árinu 2013 og í hennar fjarveru stýrði Vera Valgarðsdóttir skólanum. Hildur lét svo formlega af störfum við skólann vorið 2016 og hefur Vera verið skólastjóri.

 

Í upphafi var nafn skólans: Barnaskólinn í Höfðakaupstað, síðar Barna- og unglingaskólinn í Höfðakaupstað en svo var ákveðið að gefa skólanum sérstakt nafn og hlaut hann þá nafnið Höfðaskóli.

 

Við skólann starfaði til fjölda ára Elínborg Jónsdóttir. Hún byrjaði að kenna við skólann árið 1945 og hætti árið 1985. Hún hætti þó ekki að starfa við skólann, heldur tók að sér stundakennslu og umsjón bókasafns, til ársins 1995, þá 74 ára gömul. Elínborg lést þann 7. janúar 2007. Ef þið ýtið á linkinn hér að neðan finnið þið fleiri upplýsingar um Elínborgu.

 

 

Nemendum hélt áfram að fjölga fram yfir 1960 og náði hámarki, um 150, skólaárið 1963-1964. Vegna slæms árferðis á sjötta og sjöunda áratugnum fækkaði aftur í kauptúninu og þar með nemendum sem urðu fæstir, rúmlega 100, skólaárið 1971-1972. Þá fór þeim aftur að fjölga, með betri tíð og blómum í haga, og voru nemendur að meðaltali um 140 á níunda áratugnum. Síðan hefur leiðin legið aftur niður á við og skólaárið 2011-2012 voru nemendur alls 100.

 

Árið 1982 var tekin í notkun ný viðbygging við skólann og batnaði þá hagur hans töluvert er ýmsar sérgreinastofur og bókasafn bættust við. Nýtt íþróttahús var svo tekið í notkun 14. mars 1998. Í því eru einnig þrjár kennslustofur og þá var loksins hægt að einsetja skólann að fullu en það var gert þá um haustið.

bottom of page