top of page

Allt er nú til

Leiklistardeild Höfðaskóla á Skagaströnd setur upp söngleikinn Allt er nú til (Anything goes) með tónlist eftir Cole Porter. Söngleikurinn gerist um borð í skemmtiferðaskipi á fjórða áratug síðustu aldar og fjallar um ástir og örlög farþeganna. Kabarettstjarnan Nína Sveins gerir hosur sínar grænar fyrir hinum unga Bjössa Kristjáns, en hann hugsar ekki um aðra en Höllu Hjaltalín. Hann laumast um borð í farþegaskipið S.S. American til að reyna að koma í veg fyrir að Halla giftist lávarðinum Blængi Blandon, en þar sem Bjössi er með falsað vegabréf og þar að auki að skrópa í vinnunni mega hvorki yfirmaður hans né kafteinninn komast að því að hann sé á skipinu. Þar hittir hann fyrir ýmsa kynlega kvisti: aðalsfólk, mafíósa, sjóliða og fjárhættuspilara svo eitthvað sé nefnt. Sýningin er sannkölluð skemmtun fyrir alla fjölskylduna, stútfull af söng og dansi. Ekki missa af þessu! Frumsýning: föstudagur 5. maí 2017 kl. 20:00 Önnur sýning: laugardagur 6. maí 2017 kl. 14:00 Þriðja sýning: laugardagur 6. maí 2017 kl. 17:00 Sýnt í Félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd, miðasala við innganginn. Miðaverð: Grunnskólanemar: 1000 kr. Fullorðnir: 2000 kr. Leikarar í sýningunni eru nemendur í 8. - 10. bekk Höfðaskóla og leikstjóri er Ástrós Elísdóttir. Leikarar: Anita Ósk Ragnarsdóttir Arna Rún Arnarsdóttir Auðunn Árni Þrastarson Ástríður Helga Magnúsdóttir Benóný Bergmann Hafliðason Birgitta Rut Bjarnadóttir Bylgja Hrund Ágústsdóttir Dagur Freyr Róbertsson Freydís Ósk Kristjánsdóttir Freyja Dís Jóhannsdóttir Guðný Eva Björnsdóttir Guðrún Helga Hallbjörg Jónsdóttir Haraldur Bjarki Guðjónsson Hekla Guðrún Þrastardóttir Ingólfur Eðvald Björnsson Jóhann Almar Reynisson Kristmundur Elías Baldvinsson Laufey Lind Ingibergsdóttir Leifur Örn Ragnarsson Magnús Sólberg Baldursson Ólafur Halldórsson Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir Sveinn Halldór Hallgrímsson Söngleikurinn er nú settur upp í fyrsta sinn á Íslandi í glænýrri þýðingu Ástrósar Elísdóttur, en hann hefur lengi þekkst erlendis undir nafninu Anything goes. Framleiðsla uppsetningarinnar er samkvæmt samkomulagi við rétthafa söngleiksins, TAMS-WITMARK MUSIC LIBRARY, INC. í New York. Höfundar texta eru Wodehouse & Bolton og Lindsay & Crouse (upphaflega), Crouse & Weidman (seinni útgáfa).


Fréttasafn
Leit eftir atburðum
No tags yet.
bottom of page