top of page
Nemendaverndarráð Höfðaskóla

 

Hlutverk nemendaverndarráðs er að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur varðandi heilsugæslu, námsráðgjöf og sérfræðiþjónustu og vera skólastjóra til aðstoðar við gerð og framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur. Allar ákvarðanir um tilvísanir til sérfræðinga utan skólans fara í gegnum ráðið. Kennarar, foreldrar og nemendur geta leitað til nemendaverndarráðs með sín mál. Ráðið fundar að jafnaði hálfsmánaðarlega. Fundað er á þriðjudögum frá kl.10:40 - 11:20. 
 

Í nemendaverndarráði sitja:

Vera Ósk Valgarðsdóttir  - skólastjóri

Guðjón Sigurðsson - aðstoðarskólastjóri
Sigurbjörg Agnes Sævarsdóttir - verkefnastjóri sérkennslu
Þórdís Hauksdóttir - fræðslustjóri
Sigríður Stefánsdóttir - skólahjúkrunarfræðingur
Ólafur Bernódusson - námsráðgjafi

bottom of page