top of page

Gleðilega páska!

Í dag var síðasti dagur fyrir páskafrí. Ákveðið var að brjóta upp hefðbundna kennslu og vera með páskabingó, sem allir nemendur skólans tóku þátt í. Vinningar voru í boði Bjarmanes og Kjörbúðarinnar og við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra framlag. Hér neðar má sjá myndir af ánægðum vinningshöfum :-)

Þriðjudaginn 3. apríl er starfsdagur en nemendur mæta hressir og endurnærðir miðvikudaginn 4. apríl.

Starfsfólk Höfðaskóla vonar að þið eigið ánægjulega frídaga og gleðilega páska :-)


Fréttasafn
Leit eftir atburðum
No tags yet.
bottom of page