top of page

Vináttudagar i Höfðaskóla

Þessa vikuna eru þemadagar í Höfðaskóla með yfirskriftinni Vináttudagar. Á þriðjudegi og miðvikudegi vinna nemendur að ýmsum verkefnum tengdum vináttu og baráttu gegn einelti. Þann 8.nóvember (á föstudaginn) ætlum við síðan í vináttugöngu um bæinn. Sá dagur er helgaður baráttunni gegn einelti (www.gegneinelti.is). Það myndi gleðja okkur mikið að sem flestir tækju þátt í göngunni með okkur. Stefnt er að brottför frá Höfðaskóla kl. 10:40 og gengið verður fyrir víkina að höfninni og aftur til baka. (Ef svo ólíklega vill til að veðurguðirnir verði að stríða okkur, er vara skipulagið þannig að við hittumst í söng og leik í íþróttahúsinu kl. 12:00 á föstudeginum.) Með fyrirfram þökk. Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla.


 
Fréttasafn
!
Leit eftir atburðum

Höfðaskóli 

Bogabraut 2

545 Skagaströnd

hofdaskoli@hofdaskoli.is
Sími: 452-2800

 

 

Frístund: 867 9725

 


 

Hús skólans eru opin sem hér segir: 

Skóli: 7:30 - 17:00 

Íþróttahús: 7:40 - 20:00 

bottom of page