top of page

Elínborgardagurinn, menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg

Samkvæmt tillögu menntamálaráðherra hefur Dagur íslenskrar tungu verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, þann 16. nóvember, frá árinu 1996. Í Höfðaskóla er dagurinn einnig helgaður minningu Elínborgar Jónsdóttur fyrrverandi kennara við skólann. Af því tilefni mun Höfðaskóli standa fyrir menningar- og hátíðardagskrá fyrir bæjarbúa í Fellsborg fimmtudagskvöldið 14. nóvember kl. 18:00. Eins og undanfarin ár mun nemendafélagið Rán, með dyggri aðstoð foreldra, bjóða upp á tertuhlaðborð að lokinni dagskrá. Aðgangseyrir á dagskrána er: • 700 kr. fyrir eldri en grunnskólanemendur • 300 kr. fyrir grunnskólanemendur • frítt fyrir 3ja barn frá heimili • frítt fyrir leikskólanemendur Innifalið er aðgangur að tertuhlaðborðinu. Vonumst við til þess að sjá sem flesta bæjarbúa í hátíðarskapi. Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla.


Fréttasafn
Leit eftir atburðum
No tags yet.
bottom of page