Kennsla fellur niður eftir kl. 13.10 mánudaginn 3. nóv. vegna námskeiðs.
Skólaárið 2014-2015 taka grunnskólarnir í Húnavatnssýslum þátt í sameiginlegu þróunarverkefni sem heitir Orð af orði, verkefnið hefur þann tilgang að efla læsi og námsárangur nemenda. Guðmundur Engilbertsson hefur umsjón með verkefninu og mun hann koma reglulega á skólaárinu og vera með námskeið og ráðgjöf í öllum skólunum. Mánudaginn 3. nóvember kl. 13:30 hittast kennarar á svæðinu ásamt Guðmundi hér á Skagaströnd. Því fellur kennsla niður eftir kl. 13:10.