Mikilvægi heimalesturs
Læsi leggur grunninn að vegferð barnanna okkar.
Ágætu foreldrar/forráðamenn
Umræðan um læsi íslenskra barna hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum, enda um mjög
mikilvægan þátt í vegferð barnanna okkar að ræða. Sjá: http://www.menntamalaraduneyti.is/gottadlesa/
Öll þurfum við að kunna að lesa, allt byggir á góðri lestrarkunnáttu. Því er það að heimili og skóli þurfa að taka höndum saman og sinna lestrarnámi barnanna í sameiningu. Lestrarþjálfun er sameiginlegt verkefni okkar allra. Það er gömul saga og ný að æfingin skapar meistarann. Lestrarfærni næst ekki ef aldrei er lesið heima, ekki frekar en færni á hljóðfæri. Ef tónlistarnemandi æfir sig ekki heima, þá verða engar framfarir. Sömu sögu er að segja um lestrarfærni. Barn sem aldrei les heima, nær seint og illa framförum í lestri og það hefur mikið að segja varðandi gengi barnsins í námi almennt. Í raun byggir öll framtíð barnsins á því hvernig lestrarfærninni reiðir af.
Við í Höfðaskóla viljum beina þeim tilmælum til foreldra/forráðamanna að vera vakandi varðandi lestrarþjálfun barnanna sinna og sjá til þess að þau lesi upphátt heima. Þetta á ekki síður við eldri nemendur en þau yngri.
Það má finna alls konar lestrarefni sem höfðar til barnanna. Þetta getur verið ánægjuleg samverustund fjölskyldu þar sem allir skiptast á að lesa upphátt fyrir hina og ræða efnið í kjölfarið. Það eykur lesskilning.
Verum samtaka í þessu mikilvæga verkefni og gerum það að sameiginlegu markmiði að börnin okkar verði vel læs áður en grunnskólagöngu þess lýkur. Við getum ekki sætt okkur við minna.
Með góðri kveðju Vera Ósk Valgarðsdóttir