top of page

Nemendadagur - starfsdagur

Miðvikudaginn 20. janúar næstkomandi er nemendaviðtalsdagur þar sem nemendur og foreldrar/forráðamenn koma á boðaðan viðtalsfund.

Búið er að opna fyrir frammistöðumat í Mentor. Hægt er að fara inn í kerfið bæði á foreldra- og nemendaaðgangi. Þetta mat er svo notað í viðtalinu. Leiðbeiningar um hvar þið finnið frammistöðumatið er hægt að sjá á meðfylgjandi link.

Ætlast er til að foreldrar og nemendur séu saman þegar matið er fyllt út. Athugið að neðst í frammistöðumatinu sést hvað hvert tákn þýðir og stundum koma upp vandamál við útfyllingu í spjaldtölvum og símum (því betra að opna þetta í tölvu). Lokað verður fyrir matið mánudagskvöldið 18. janúar. Hafið samband við skólann ef upp koma vandamál.

Vert er að minna á að mánudaginn 18. janúar er starfsdagur kennara og því frí hjá nemendum.

https://www.youtube.com/watch?v=pNPVvqeV-uY


Fréttasafn
Leit eftir atburðum
No tags yet.
bottom of page