top of page

Skólaslit Höfðaskóla

Skólaslit Höfðaskóla fara fram þriðjudaginn 31. maí n.k. og hefjast kl 18:00.

Meðan á skólaslitum stendur eru nemendur beðnir um að sitja hjá forráðamönnum. Nemendur verða kallaðir upp á svið ásamt sínum umsjónarkennara þar sem þeir fá afhentan vitnisburð, byrjað á 1. og 2. bekk og svo koll af kolli.

Að skólaslitum loknum verður kaffihlaðborð fyrir 10.bekkinga, aðstandendur þeirra og starfsfólk skólans.

Við þökkum fyrir gott samstarf á liðnum vetri og hlökkum til að takast á við verkefnin sem framundan eru í samvinnu við nemendur, aðstandendur og samfélagið allt :-)

Hafið það sem best í sumar :-)


Fréttasafn
Leit eftir atburðum
No tags yet.
bottom of page